mánudagur, janúar 01, 2007

Gleðilegt nýtt ár!

Jæja þá er 2007 komið, gamlárs heppnaðist mjög vel hérna hjá okkur. Ég elskaði skaupið, ég fíla svo innilega þennan húmor. Hugleikur og Þorsteinn er greinilega alveg frábær blanda. Einnig sem sannur Kaupþings starfsmaður fannst mér John Cleese auglýsingin alveg frábær og bíð spennt eftir hinum tveimur. Gamlárspartýið var líkt og venjulega hjá Karen og var einstaklega skemmtilegt síðan var haldið niður í bæ. Eitthvað var staðavalið takmarkað og því ákveðið að fara á Kaffi Ak, það var ágætt. Tónlistin var bara mjög þokkaleg og ekkert brjálæðislega mikill troðningur. All and all var þetta bara mjög skemmtilegt kvöld. Þetta verður gott ár!

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir skemmtilegt kvöld:) Eða 3 kvöld í röð:)
Heyrumst fljótlega...

HDJ

Karen Dúa sagði...

sama og síðasti ræðumaður!!
sjáumst á morg á torginu, hjarta akureyrar (??)

ciao

Sigurður Axel Hannesson sagði...

Gleðilegt ár!

Nafnlaus sagði...

HVernig er það, á ekki að koma með annál? eða völvuspá fyrir 2007?

Hulda er búin að setja inn annál fyrir dáltið löngu og í dag póstaði ég mínum. En hvar er þinn?