miðvikudagur, desember 20, 2006

Pakkar!

Pakkar eru svo rosalega mis spennandi, það eru alltaf nokkrir sem eru í sér hópi. Pakkinn frá mömmu er oftast spennandi, nonna pakki getur verið óútreiknandi. Pakkinn frá vinnunni er mjög skemmtilegur í ár. Ekki jafn stór og í fyrra, ótrúlega þungur miðað við stærð! Ein önnur gjöf sem er alltaf ofarlega á skemmtana-skalanum er pakkinn frá Karen, alltaf flott pakkaður inn, einstakur! Nokkrir pakkar eru komnir í hús í ár, pakkinn frá Ömmu og Afa, það er fallegur vasi sem afi gerði. Pakkinn frá KB banka allur gulli skreyttur, komin með fiðring í fingurnar. Auka pakki frá ömmu mjög skrautlegur. Úff þetta er spennandi!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gaman af þessu öllu saman. Ég er búin að setja pakka í minni vörslu (eru reyndar ekki allir til mín) undir jólatré. Um að gera að láta þetta njóta sín þegar allir heimilisbúar eru með aldur og þroska til að láta þetta eiga sig fram að jólum.