föstudagur, desember 15, 2006

Jólin koma

Núna hellist jólaskapið yfir mig. Það var jólamatur í hádeginu í bankanum, litlu jólin eru í kvöld. Jólaskrautið mitt er komið upp, meira að segja George Jenson stál englarnir mínir. Ég er búin að kaupa allar jólagjafirnar og pakka öllum inn, nema einni. Búin að velja jóladressið...... Jólin mega bara koma, svona mín vegna. Núna getur maður notið þess að vera til, fer ef til vill á eina opnun í Boxinu, fæ mér kaffi og köku á Bláu Könnunni, aaahhhh og slappa af. Þetta verða góð jól!

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Vonum bara að jólagjöf KB til starfsmanna verði örlítið sniðugri en til viðskiptavina ;) Ég tók út marga marga pening í morgun í mótmælaskyni!

Karen Dúa sagði...

já bölvaði pokinn eða hatturinn eða hvað sem þetta nú var.

Díana sagði...

Hehehe

Þessi poki er vægast sagt umdeildur, það kom ein kona og útúðaði okkur og bankanum fyrir að senda sér þennan viðbjóð, svo kom enn önnur sem fannst þetta geðveikt töff og sagðist hafa sett mandarínur í hann strax!
Persónulega hef ég ekki séð þennan víðfræga poka, en ég bíð spennt.
En já ég vona að jólagjöfin frá bankanum verði eitthvað annað til starfsmanna, og kannski gengur þetta betur heldur en í fyrra!

Karen Dúa sagði...

Hann er oversized kokkahúfa enda var valli fljótur að setja hann á hausinn heh. Gott ef hægt er að nota þetta eitthvað..

Unknown sagði...

Heyrðu auðvitað er þetta nothæft höfuðfat. Væri jafnvel hægt að nota þetta til að stunda mannrán ef vextirnir hjá KB verða of háir ;)

Karen Dúa sagði...

já, með möguleikanum á að brjóta uppá opnast fleiri tækifæri.

Nafnlaus sagði...

Ég er nú bara svekt við KB banka! Ég hef aldrei verið með viðskipti mín annarsstaðar, og alltaf verið í plús á reiknungunum mínum, en ALDREI fengið eina einustu jólagjöf!! En mér var svo sem alveg sama þegar ég sá hvað pabbi fékk í ár:)

Hulda

Nafnlaus sagði...

Við skulum ekki ásaka Díönu elskuna fyrir þennan forláta "poka"/körfu/húfu what ever....held pe´rsónulega að það sé ekkert betra að fá rauða húfu með deri og mynd af íþróttaálfinum og Sollu stirðu;)
Gleðileg jól alle sammen!
áfram young folks með peter,björn and john