þriðjudagur, febrúar 20, 2007

Krulla

Já þetta er nýjasta sportið, Krulla. Kaupþing setti saman lið til þess að taka þátt í nýliðamóti og köllum við okkur Kapaflingfling! Við prufuðum öll þetta í fyrsta skiptið fyrir tveimur vikum og erum núna næstum orðin pro. Við erum ósigrðuð í mótinu. Reynar varð að dæma okkur sigurinn í fyrsta leiknum þar sem Glitnir mætti ekki til leiks (líklega af ótta). Í gær voru tveir leikir hjá okkur, fyrst unnum við Landsbankann og svo Karólínus. Núna erum við efst í deildinni, en erfiður leikur er framundan. Keppnin klárast á laugardaginn og þá sjáum við hvar við stöndum.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Thessi ithrott kemur á óvart thegar madur byrjar ad spila...vod Bobby skemmtum okkur alla vega konunglega thegar vid skelltum okkur eitt kvold med mommu og pabba:)

En ég vona ad thitt lid vinni, alla vega Bókvalslidid, hahahha

Díana sagði...

Já það væri rosalega gaman að vinna Bókval hehe. Ég veit ekki hversu ánægður hann Nonni yrði en hann verður bara að sætta sig við þetta.

Nafnlaus sagði...

já ég gef skit i oll fjolskyldubond og segi áfram KB :)