mánudagur, september 10, 2007

3 Victoria Road South

Við erum komin með íbúð í Portsmouth, allir gestir eru velkomnir þar sem við erum með auka herbergi.
Hérna til hliðar má sjá mynd sem ég tók úr leigubíl á fleygiferð framhjá. Önnur hæð í svarta húsinu, við eigum semsagt báða gluggana og svalirnar.
Íbúðin var í útleigu af tveimur beskum strák rokkurum með frekar lítið hreinlæti. En það má vel þrífa!
Við flytjum inn 24. sept og eru allir gestir velkomnir eftir þann tíma.

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

í huganum er ég nú þegar mætt, sest með þér á pub eftir rölt í búðir....umm hvað er gott að koma til þín:)

Díana sagði...

Úffff hvað þetta er yndælt. Ég held að ég sjái þetta bara alveg fyrir mér líka!
Ummmm

Nafnlaus sagði...


Til hamingju með að vera komin með íbúð - er þetta íbúðin sem þú ÆTLAÐIR að fá? :)

Hafiði það sem allra best og gangi ykkur vel í skólanum. Heyrumst, kv. Rósa

Díana sagði...

Takktakk Rósa
Nei þetta er ekki sú sem ég ætlaði að fá, þegar við komum út og spurðum út í hana þá var hún víst löngu farin en var bara óvart á netinu. En þessi er nýuppgerð og allar græjurnar voru nýjar í henni.

Nafnlaus sagði...

Jæja jæja
Ætlarðu ekkert að fara að blogga svona til að leyfa okkur að vita hvað er að gerast í UK? :)

Nafnlaus sagði...

Hæ skvís
Sammála síðasta ræðumanni, viljum endilega fara að fá fréttir af skvísunni. Vonandi hefur allt gengið vel hjá ykkur? Hafið það rosa gott :), kv. úr bankanum Gunna

Nafnlaus sagði...

Já ég er sammála stelpunum, við verðum að fara að fá fréttir :)

Karen Dúa sagði...

Ég hlakka svo til þegar þið fáið internet, ég sakna þín Díana ... !

Nafnlaus sagði...

Sæl frænka, ég er alltaf að kíkja og tékka hvort það séu komnar einhverjar fréttir frá UK. Vonandi fer eitthvað að detta inn.